25.3.2008 | 13:35
...
Ég er komin heim. Meira að segja búin að vera heima í næstum tvær vikur. Búin að fara á bæði heimin mín; var í viku fyrir páska á Eyrarbakka og er núna í Borgarnesi. Þannig að ef ykkur langar til að hitta mig þá er hægt að koma í heimsókn í Borgarnes eða ef ykkur dugar að heyra í mér þá er hægt að hringja í mig.
Þegar evran var komin í 103 kr þá þótti mér nóg um og ákvað að koma mér aftur til Íslands. Síðan þá hef ég verið að leita mér að vinnu. Og leitin bar árangur á endanum; ég er komin með vinnu. Meira að segja við tamningar. Fyrst þarf bara að byggja hesthús..
Athugasemdir
hva! geturðu ekki tamið undir berum himni?
Dóra (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 19:31
Hæ Hildur Frænka:) En gaman að þú sért komin með vinnu!! og enn skemmtilegra að þetta sé tamningavinna:) Hlakka til að heyra meira um þetta:) Knús og kram frá mér
Helga (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 20:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.