10.12.2007 | 11:47
Ég er komin heim í heiðardalinn..
..og mikið ansi er kalt hérna..
Við eyddum seinustu dögunum í Singapúr hjá Prinsinum af Wales í Little India hverfinu. Við gerðum heiðarlega tilraun til að fara í dýragarðinn singapúrska en það var einsog syndaflóðið væri endurtekið á herðar okkar þar. Við þrjóskuðumst samt við lengi vel, Íslendingar láta ekki smá rigningu á sig fá, þetta var ekki einu sinni köld rigningi! Þegar rigningin var hinsvegar orðin meira en smá og var búin að vera það ansi lengi þá létum við okkur og flúðum í öryggi lestastöðvanna. Þetta var annars mjög fallegur dýragarður og leit vel út. Á myndinni er tapírungi, mjög sætur. Fullorðnir tapírar eru ögn stærri en fullorðin svín.
Daginn eftir flugum við heim. Hvað getur maður sagt um það; 14 tímar í flugvél bjóða ekki uppá að neitt markvert gerist.. Ég horfði á nokkrar bíómyndir, spilaði mario bros og lærði víetnömsku (reyndar soldið seint i rassinn gripið.)
Við komum til London í skítakulda og viti menn! það rigndi þar líka! Og svo maður vitni í biblíuna þá var hvergi rúm fyrir þau á gistihúsum því það voru að koma jól. Við Herdís gengum um götur London í rigningunni og leituðum að gistihúsi í meira en klukkutíma þangað til að einn góðhjartaður hótelmaður vorkenndi okkur og lét okkur fá herbergi.
Daginn eftir flugum við til Íslands. Það var nú líka tiltölulega viðburðalaust flug. Þegar við vorum búnar að tékka inn farangurinn okkar og vorum komnar inn í flugstöð slitnaði annar sandalinn minn.. Þeir fóru í ruslið og Hildur hélt áfram berfætt. Berfætt í flugvélina, berfætt út úr henni, berfætt í fríhöfnina og í gegnum tollinn. Þegar ég leit úr um dyrnar og sá snjóinn úti þá ákvað ég samt að kafa ofan í tösku og ná mér í skó..
Ísland er kalt en ágætt. Við fórum uppí Borgarnes og fengum grjónagraut með slátri. Svo leið helgin við mikinn bakstur og skemmtun. Við bökuðum laufabrauð, kossa, netkökur, kryddkökur, spesíur, engiferkökur, piparkökur og sörur. Ágætis árangur miðað við stærðina á eldhúsinu hérna heima..
Svo er bara að finna sér vinnu.
Athugasemdir
Velkomin heim.
Ranka (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 20:12
já, velkomin heim! Gott þú ert komin heim heil á húfi á kalda Ísland. Við þurfum að hittast fljótlega, ég er reyndar í kreisí prófum núna en er búin 17. des. Það verður gott að komast í jólafrí og geta hitt ykkur vinina eitthvað! Gott þú fékkst grjónagrautinn sem þér var búið að langa svo mikið í og alltaf gaman að baka smákökur. Ég er búin að baka einn skammt en hann kláraðist sama kvöldið!! haha, ég baka meira í jólafríinu;) Heyrumst vonandi fljótlega! Knús!!
Guðrún Nína (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.